English

Ottó Guðjónsson lýtalæknir

Brjóstastækkun

Ertu að hugsa um brjóstastækkun?

 

Brjóst geta breyst, bæði með aldrinum, vegna barneigna, vegna brjóstagjafa og sjúkdóma. Stundum þarf að nema brjóst á brott vegna krabbameins. Lýtalæknar hafa frá því að sérgreinin varð til glímt við að breyta stærð og lögun brjósta, ýmist í fegrunarskyni eingöngu, til að lagfæra lýti eða til að byggja brjóst upp eftir brottnám. Lengi var einkum um að ræða minnkun of stórra brjósta eða enduruppbyggingu siginna brjósta, t.d. eftir brjóstagjöf. Ekki varð hins vegar mögulegt að stækka brjóst kvenna fyrr en sílikon kom til sögunnar. Viðbrögð líkamans við þessu framandi efni eru yfirleitt lítil þannig að sjaldan hljótast vandræði af. Fylgikvillar af ýmsu tagi geta þó komið upp í þessum aðgerðum eins og öðrum. Skurðaðgerð er aldrei fullkomlega áhættulaus. Sílikonhlaupið, sem notað er í brjóstafyllingar, er unnið úr kísli, einu algengasta efni jarðskorpunnar. Kísill er í formi kristalla sem mynda m.a. venjulegan sand. Sílikon finnst hins vegar ekki í náttúrunni en með því að tengja lífræn efni við kísil verður til hlaup eða olía sem notuð er nú. Vegna einstakra eiginleika er sílikon gríðarlega mikið notað, m.a. í matvæli, snyrtivörur, lyf og lækningatæki á borð við sprautur og gerviliði. Sílikonpúðarnir, sem notaðir eru til að stækka brjóst, eru venjulega gerðir úr sílikonkvoðu sem innpökkuð er í seigan sílikonpoka.Í svonefnd um saltvatnsfyllingum er saltvatni komið fyrir í sílikonpokanum í stað kvoðunnar.


Er brjóstastækkun lausnin fyrir þig?

Mikilvægt er að konur fái ítarlegar upplýsingar fyrir aðgerð áður en farið er í brjóstastækkun. Brjóst skulu einungis stækkuð að vel athuguðu máli þar sem allar hliðar aðgerðarinnar hafa verið ígrundaðar. Sérstök ástæða er fyrir ungar konur, einkum undir tvítugu, að taka sér góðan umhugsunarfrest áður en þær óska eftir brjóstastækkunaraðgerð. Konur þurfa að vera líkamlega og andlega undir aðgerðina búnar og þurfa því að hafa tekið út fullan þroska áður en til aðgerðar kemur. Aðgerðin fer venjulega fram á skurðstofu lýtalæknis og í svæfingu. Brjóstafyllingunni er komið fyrir í gegnum lítinn skurð, annaðhvort undir brjóstkirtlinum sjálfum eða ennþá dýpra, undir stóra brjóstvöðvanum. Sílikon er því aldrei sett inn í brjóstkirtilinn sjálfan. Það fer eftir samkomulagi hverju sinni hvor aðgerðin er valin. Útkoman er nokkuð svipuð þrátt fyrir þennan grundvallarmun. Aðgerðartíminn er um það bil ein til ein og hálf klukkustund. Að aðgerð lokinni fer konan heim þegar hún hefur náð sér eftir svæfinguna. Talsverðir verkir fylgja aðgerðinni í nokkra daga á eftir og eru brjóstin hörð og aum til að byrja með. Rétt er að taka frí frá vinnu í eina til tvær vikur eftir því hvað viðkomandi starfar og íþróttir ætti ekki að stunda í 4–6 vikur.

Áhættuþættir

Fylgikvillar vegna sílikonaðgerða eru sem betur fer sjaldgæfir. Öllum aðgerðum fylgir þó einhver áhætta. Í fyrsta lagi er örlítil áhætta fólgin í svæfingu. Þá er einnig ákveðin hætta á blæðingu eða sýkingu sem yfirleitt er unnt að meðhöndla fljótt (blóðkekki hleypt út, sýklalyf gefin). Einstaka sinnum þarf þó að fjarlægja fyllinguna vegna sýkingar sem sýklalyfjameðferð vinnur ekki á. Í þriðja lagi getur teygst á skyntaugum til brjóstsins við skurðaðgerðina þannig að konan býr við skerta eða aukna tilfinningu í brjóstum eða geirvörtum um tíma. Í einstaka tilvikum getur taug skemmst, sem leiðir til varanlegs svæðisbundins dofa. Loks er í stöku tilvikum mögulegt að útlit brjósta verði annað en vonir stóðu til. Ýmislegt getur farið úrskeiðis í því efni, hrukkur geta myndast í húð, brjóstin orðið misstór, lögun þeirra orðið önnur en vænst var og örvefsmyndun orðið meiri en venjulega. Aldrei er unnt með öllu að forðast slík vandamál. Því er mikilvægt að konan skilji vel hvað hún er að leggja út í þannig að árangurinn verði í samræmi við væntingar.

Að ákveða skurðaðgerð

Ræddu væntingar þínar við lækninn. Hver sjúklingur (og hver læknir) hefur mismunandi skoðun á því hvaða stærð á brjóstum þykir eftirsóknarverð. Læknirinn skoðar á þér brjóstin á meðan þú stendur upprétt. Hann ræðir þá þætti sem geta haft áhrif á aðgerðina, t.d. aldur þinn, stærð og lögun brjóstanna, ástand húðarinnar og fleira. Þið ættuð einnig hvaða útlitsbreytingar verða á brjóstunum og hvort þær séu líklegar til að standast væntingar þínar. Læknirinn lýsir aðgerðinni og fullvissar sig um að þú gerir þér grein fyrir örunum sem hún skilur eftir sig.
Á meðan á skoðun stendur útskýrir læknirinn hvaða svæfingaraðferð hann kýs að nota, hvar aðgerðin fer fram og hvað hún kostar. Sjúkratryggingar taka ekki þátt í kostnaði vegna brjóstastækkunar. Efst á síðu.

Undirbúningur fyrir skurðaðgerð

Skurðstofa, svæfing og aðgerð

Fyrir aðgerð færðu kæruleysissprautu hjá svæfingarlækni og ert síðan svæfð.
Brjóstalyfting tekur yfirleitt 2-3 tíma. Yfirleitt er saumað umhverfis brúna svæðið (aerola) sem umlykur geirvörtuna, síðan í beinni línu niður á við og að húðfellingunni undir brjóstunum.
Ef púðar eru settir í brjóstin samhliða brjóstalyftingunni er þeim komið fyrir undir brjóstavefnum. Læknirinn skrifar upp á verkjalyf og e.t.v. sýklalyf til að fyrirbyggja sýkingu, áður en þú ferð af sjúkrastofnuninni. Efst á síðu.

Eftir aðgerðina

Eftir aðgerðina verður þú með léttar umbúðir. Brjóstin verða marin, bólgin og aum í einn eða tvo daga en þú ættir ekki að finna fyrir miklum sársauka. Eftir nokkra daga er umbúðunum skipt út fyrir mjúkan stuðningsbrjóstahaldara. Í honum þarftu að vera allan sólarhringinn, yfir sáraumbúðum, í 3-4 vikur. Saumarnir eyðast af sjálfu sér. Ef þér finnst húðin á brjóstunum vera mjög þurr geturðu borið á þig rakakrem annað slagið. Varastu að toga í húðina og ekki koma nálægt skurðunum.
Væntanlega hefurðu minni tilfinningu en áður í geirvörtunum og brjóstunum, vegna bólgunnar eftir aðgerðina. Þessi  doði minkkar yfirleitt á næstu 6 vikum á meðan bólgan er að hverfa, en hann getur varað í næstum ár, og í einstaka tilfellum til langframa.
Læknirinn gefur ráð um græðandi krem til að bera á skurðsvæði eftir aðgerð.

Fullum bata náð

Vertu þolinmóð á leiðinni til fulls bata. Fyrstu dagana ættir þú að taka því rólega og halda þig frá vinnu í viku eða lengur, eftir því hvernig þér líður. Ekki lyfta neinu upp fyrir höfuð í 3-4 vikur. Ef þú verður vör við einhver óeðlileg einkenni, hafðu samband við lækninn.
Læknirinn gefur þér nákvæmar leiðbeiningar um hvenær þú mátt byrja að hreyfa þig. Ráðlegt er að halda sig frá kynlífi í a.m.k. viku og forðast erfiða líkamsrækt í mánuð. Farðu síðan hægt af stað. Ef þú verður þunguð ætti aðgerðin ekki að hafa áhrif á brjóstagjöf, þar sem mjólkurkirtlar og geirvörtur eru ósködduð. Efst á síðu.

Nýja útlitið

Læknirinn leggur sig fram við að gera örin eins lítið áberandi og mögulegt er. Samt skaltu hafa í huga að ör eftir brjóstalyftingu eru sýnileg til langframa. Þau geta virst ójöfn og rauð í fleiri mánuði en fölna og verða smám saman að fíngerðum, hvítum línum. Sem betur fer eru örin þannig staðsett að brjóstahaldari felur þau og þú getur verið í flegnum toppum. Hafðu einnig hugfast að brjóstastækkurn gerir brjóstin ekki stinn ævilangt – áhrif þyngaraflsins, öldrun, meðganga og bjúgsöfnun munu taka sinn toll.
Ánægja þín með brjóstastækkunin verður meiri ef þú skilur um hvað aðgerðin snýst og hefur raunhæfar væntingar.

Ottó Guðjónsson.

Sérgrein:
Lýta- og fegrunaraðgerðir
Aðsetur:
Álfheimar 74, 7. hæð, 108 Reykjavik
Sími:
515 1600
 
Sérgrein:
Lýta- og fegrunaraðgerðir
Aðsetur:
Álfheimar 74, 7. hæð, 108 Reykjavik
Sími:
515 1600