English

Ottó Guðjónsson lýtalæknir

Eyrnaaðgerð

Ertu að hugsa um aðgerð á eyrum?

Aðgerðir á eyrum eru oftast gerðar á börnum er mikilvægt að foreldrar reyni að átta sig á raunverulegum sálrænum áhrifum útistandandi eyrna á barnið. Ekki er æskilegt að ýta barninu út í aðgerð ef það er sátt við útlit sitt. Þau börn sem eru ósátt við útlit sitt eru móttækilegri fyrir aðgerð og þar af leiðandi líklegri til að verða ánægðari eftir aðgerðina. Í fyrsta viðtali metur lýtalæknir umfang aðgerðar og veita þér/foreldrum nauðsynelgar leiðbeiningar um undirbúning og útskýrir framkvæmd aðgerðarinnar.

Er eyrnaaðgerð lausnin fyrir þig eða barnið þitt?

Eftir aðgerð eru umbúðir vafðar utan um höfuðið til þess að styðja nýja mótun eyrnanna og til að flýta fyrir bata. Stálpaðir unglingar og fullorðnir sem fara í eyrnaaðgerð eru yfirleitt rólfærir fáeinum klukkutímum eftir aðgerð. Börn sem fara í svæfingu þurfa yfirleitt tvo til þrjá tíma undir eftirliti í vöknun þangað til áhrif svæfingarinnar eru hjöðnuð. Líklegt er að sjúklingur finni fyrir verkjum eftir aðgerðina en úr þeim má draga með verkjalyfjum. Eftir nokkra daga eru umbúðir fjarlægðar og léttari umbúðir settar í þeirra stað. Algengt að nota íþróttabindi til að vernda eyrun og að hjálpa til við mótun eyrnanna meðan sárin eru að gróa.

Eyrnaaðgerð

Mikilvægt er að fara í einu og öllu eftir fyrirmælum lýtalæknisins varðandi umbúðirnar, sérstaklega á nóttunni. Yfirleitt eru notaðir saumar sem leysast upp og hverfa á fjórum til sex vikum. Til að tryggja bata er þýðingarmikið að taka ekki þátt í leikjum eða íþróttum þar sem hætta er á að eyrun verði fyrir hnjaski. Flestir fullorðnir geta snúið aftur til starfa eftir fáeina daga og börn geta farið í skóla eftir viku. Þau verða þó að fara varlega í alla leiki næstu vikur á eftir aðgerð.

Áhættuþættir

Vandamál við eyrnaaðgerðir eru sjaldgæf og yfirleitt minni háttar. Hinsvegar geta áhætta fylgt öllum skurðaðgerðum, eins og t.d. blæðingar og sýkingar þótt slíkt sé sjaldgæft. Í undantekningartilfellum geta komið upp vandamál varðandi eyrnaaðgerðir eins og t.d. höfnun á innri saumum.

Að ákveða skurðaðgerð

Í langflestum tilfellum eru þeir sem fara í eyrnaaðgerð ánægðir með árangurinn. Markmið aðgerðarinnar er að bæta útlit og vanlíðan sem hefur komið í kjölfar t.d. útstæðra eyra. Því er mikilvægt að væntingar séu í samræmi við líklega útkomu aðgerðar. Oft næst t.d. ekki sá árangur að bæði hægra og vinstra eyra séu nákvæmlega eins staðsett. Ef væntingar eru í samræmi við upphaflegt markmið eftir viðtal við lýtalækninn eru miklar líkur á að bæði foreldrar og barn verði ánægð með árangurinn.
Efst á síðu.

Undirbúningur, skurðaðgerð og svæfing

Í eyrnaaðgerð þarf ekki að svæfa þó að svæfingar séu oft notaðar á börnum og yngri krökkum. Aðgerðir á unglingum og fullorðnum eru yfirleitt gerðar með deyfingu. Í aðgerðinni opnar lýtalæknirinn skurð aftan á eyranu til að komast að brjóskinu. Brjóskið er síðan mótað til og fært nær höfðinu eða hluti þess numinn brott. Að þessu loknu er skurðurinn saumaður saman. Aðgerðin skilur eftir ör aftan á eyranu sem er lítt sýnilegt og yfirleitt varla greinanlegt með tímanum.

Efst á síðu.

Ottó Guðjónsson.

Sérgrein:
Lýta- og fegrunaraðgerðir
Aðsetur:
Álfheimar 74, 7. hæð, 108 Reykjavik
Sími:
515 1600
 
Sérgrein:
Lýta- og fegrunaraðgerðir
Aðsetur:
Álfheimar 74, 7. hæð, 108 Reykjavik
Sími:
515 1600